Skrifaði undir eftir þrjá mánuði án samnings

Atli Sigurjónsson verður áfram í Vesturbænum.
Atli Sigurjónsson verður áfram í Vesturbænum. mbl.is/Óttar

Knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson hefur framlengt samning sinn við KR og mun hann leika með liðinu næstu tvö tímabil.

Atli var samningslaus eftir síðasta tímabil og var því án félags í tæpa þrjá mánuði. Atli kom fyrst til KR frá uppeldisfélaginu Þór árið 2012 og skipti yfir til Breiðabliks árið 2016. Hann sneri svo aftur til KR árið 2017.

Í 238 leikjum í efstu deild hér á landi hefur Atli skorað 36 mörk. Hann gerði sex mörk í 23 leikjum með KR á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert