Fyrirliðinn veðjaði á leiki í Bestu deildinni

Elmar Atli Garðarsson fagnar marki með Vestra í Bestu deildinni …
Elmar Atli Garðarsson fagnar marki með Vestra í Bestu deildinni í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Vestra, viðurkennir að hafa veðjað á leiki í Bestu deild karla, þar sem hann spilaði sjálfur með Vestfjarðaliðinu á síðasta tímabili.

Elmar greinir frá þessu á Facebook og segir þar:

„Mér finnst rétt að ég bregðist við og upplýsi sjálfur um mistök sem ég gerði.

Ég vill vera hreinskiptinn með atvik og dreg ekkert undan. Mín mistök eru þau að ég veðjaði á leiki í Íslandsmóti KSÍ.

Þetta gerði ég sjálfur og án þess að nokkur tengdist þeim veðmálum. Voru þetta veðmál á leiki í Bestu deildinni.

Veðmál mín tengdust hvorki Vestra né heldur gátu haft nokkur áhrif á stöðu liðs míns eða annarra liða sem voru í keppni við okkur.

Hvorki var um umtalsverðar fjárhæðir að ræða né heldur hafði ég nokkurn hag af. Fyrst og fremst var þetta leið til þess að hafa meira gaman af því að fylgjast með leikjunum.

Þetta voru mistök af minni hálfu og lýsa ákveðnum dómgreindarbresti.

Ég er fyrirliði og er því fyrirmynd annarra leikmanna og stuðningsmanna félagsins. Ég brást sjálfum mér og þessi yfirlýsing verður örugglega mörgum vonbrigði.

Feluleikur eða undanbrögð þjóna engum tilgangi. Ég gerði mistök. Ég viðurkenni mistök mín og ég læri af þeim.

Ég vona að viðurkenning mín opni augu annarra fyrir þeirri ábyrgð sem við knattspyrnumenn berum og skyldum gagnvart heilindum leiksins.

Dómstólar Knattspyrnusambands Íslands munu fá mál mitt til meðferðar.

Ég heiti fullri samvinnu og fel ekkert." 

Elmar er 28 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril með Vestra, samtals 191 leik í þremur efstu deildum Íslandsmótsins og 22 þeirra í Bestu deildinni á síðasta tímabili.

Sigurður og Steinþór fengu langt bann

Tvö nýleg fordæmi eru fyrir því að íslenskur leikmaður veðji á leiki og hafi verið refsað fyrir það.

Sigurður Gísli Bond Snorrason, leikmaður Aftureldingar, var úrskurðaður í eins árs bann árið 2023, eftir að hafa veðjað á hundruð knattspyrnuleikja hér á landi árið 2022, þar á meðal á leiki sem hann tók þátt í sjálfur.

Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður KA, var í júní 2023 úrskurðaður í bann til loka tímabilsins eftir að hafa gerst sekur um að veðja á leiki á fimm ára tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert