Knattspyrnumennirnir Aron Einar Gunnarsson og Jón Dagur Þorsteinsson eru í fyrsta landsliðshópi þjálfarans Arnars Gunnlaugssonar. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa ekki spilað mikið með félagsliðum sínum að undanförnu.
Á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal var Arnar spurður að því hvernig það hefði verið fyrir hann að velja leikmenn sem væru ekki að spila mikið með félagsliðum sínum.
„Aron Einar hefur ekki verið að spila marga leiki en hann er með um það bil 98-99 prósent æfingamætingu sem þýðir að hann er í góðu standi.
Hann hefur spilað sterka leiki á móti sterkum liðum í Meistaradeild Asíu. Hefði ég viljað að hann væri búinn að spila fleiri leiki? Já, að sjálfsögðu en hann er samt í góðu formi,“ sagði Arnar um Aron Einar, sem leikur með Al Gharafa í Katar.
„Jón Dagur hefur nánast ekki spilað neitt í síðustu sex til sjö leikjum, sem er slæmt. En hann hefur alltaf verið frábær fyrir landsliðið.
Þið vitið alveg hversu mikið ég elska mína kantmenn, en hann er eiginlega eini náttúrulegi kantmaðurinn sem við eigum að svo stöddu. Þá meina ég kantmann sem hangir við og líður vel að faðma hliðarlínuna og taka þátt í öllu sem því fylgir.
Ég vil sjá hann núna, hvernig standi hann er í. Ég held líka að þrátt fyrir að það sé mjög andlega erfitt að vera hjá félagsliði og spila lítið þá geturðu ýtt á nýjan takka um leið og þú mætir í landsliðshópinn.
Þá ertu kominn í nýtt umhverfi og tekur ekki bagga frá félagsliðinu þínu með þér inn í landsliðið. Ég held að við séum ekki að fá sama Jón Dag og hann er hjá sínu félagsliði,“ sagði landsliðsþjálfarinn um Jón Dag, leikmann Herthu Berlínar.