Skrifar undir til þriggja ára á Akranesi

Árni Marinó Einarsson.
Árni Marinó Einarsson. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumarkvörðurinn Árni Marinó Einarsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍA. 

Árni hefur verið á mála hjá ÍA síðan 2018 en þá gekk hann í raðir félagsins frá Aftureldingu. 

Hann á að baki 77 deildarleiki, þar af 50 í efstu deild, og hefur verið aðalmarkvörður Skagaliðsins í uppgengi þess síðustu tvö tímabil. 

ÍA hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa verið nýliði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert