Sú næstmarkahæsta komin í Val

Jordyn Rhodes skýtur að marki Vals í leik með Tindastóli …
Jordyn Rhodes skýtur að marki Vals í leik með Tindastóli á Hlíðarenda í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hin bandaríska Jordyn Rhodes, sem var í hópi bestu leikmanna Bestu deildar kvenna í knattspyrnu með Tindastóli á síðasta tímabili, er gengin  til liðs við Val.

Jordyn, sem er 24 ára  gömul, kom til Tindastóls í fyrra með það erfiða hlutverk að leysa Murielle Tiernan af hólmi en gerði það vel. Hún skoraði 12 mörk í 21 leik í Bestu deildinni og varð næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar, ásamt því að skora eitt mark í bikarkeppninni.

Þá varð hún í þriðja sæti í M-einkunnagjöf Morgunblaðsins, á eftir Söndru Maríu Jessen hjá Þór/KA og Katie Cousins hjá Val.

Jordyn átti stóran þátt í því að Tindastóli tókst að halda sæti sínu í deildinni en hún gerði tæplega helming marka Skagfirðinganna á tímabilinu og átti þátt í 18 af 26 mörkum liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert