Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu, tilkynnti í dag 23 manna hóp fyrir leikina gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni sem báðir fara fram á Þróttarvellinum í Laugardal 4. og 8. apríl.
Tvær breytingar eru á hópnum frá leikjunum í Sviss og Frakklandi í febrúar. Hildur Antonsdóttir og Amanda Andradóttir sem þá voru fjarverandi vegna meiðsla eru báðar í hópnum en úr honum detta þær Bryndís Arna Níelsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir.
Ísland er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar, eftir 0:0 jafntefli í Sviss og 3:2 tap í Frakklandi. Frakkar eru með sex stig, Norðmenn þrjú og Svisslendingar eitt stig.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
15/0 Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Inter Mílanó
12/0 Telma Ívarsdóttir, Rangers
8/0 Fanney Inga Birkisdóttir, Häcken
Varnarmenn:
134/11 Glódís Perla Viggósdóttir, Bayern München
70/2 Ingibjörg Sigurðardóttir, Bröndby
47/1 Guðrún Arnardóttir, Rosengård
36/0 Guðný Árnadóttir, Kristianstad
15/0 Sædís Rún Heiðarsdóttir, Vålerenga
8/1 Natasha Anasi, Val
Miðjumenn:
115/38 Dagný Brynjarsdóttir, West Ham
51/6 Alexandra Jóhannsdóttir, Kristianstad
49/11 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Leverkusen
22/2 Hildur Antonsdóttir, Madrid CFF
18/0 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Breiðabliki
16/1 Berglind Rós Ágústsdóttir, Val
15/1 Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Bröndby
12/2 Andrea Rán Hauksdóttir, Tampa Bay Sun
5/0 Katla Tryggvadóttir, Kristianstad
Sóknarmenn:
49/6 Sandra María Jessen, Þór/KA
46/12 Sveindís Jane Jónsdóttir, Wolfsburg
45/6 Hlín Eiríksdóttir, Leicester
23/2 Amanda Andradóttir, Twente
6/0 Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, RB Leipzig