Áfall fyrir Víkinga

Nikolaj Hansen.
Nikolaj Hansen. mbl.is/Eyþór Árnason

Nikolaj Hansen, fyrirliði karlaliðs Víkings úr Reykjavík í fótbolta, er meiddur aftan í læri og missir af þeim sökum af fyrstu leikjum Íslandsmótsins.

Þetta tilkynnti Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga, í samtali við fótbolta.net en Hansen tognaði aftan í læri í æfingaleik gegn Grindavík á miðvikudaginn.

Hanesn kom inn á sem varamaður í leiknum og gerir þjálfarinn ráð fyrir því að danski framherjinn verði frá í þrjár til fjórar vikur.

Fyrstu leikir Víkinga í Bestu deildinni verða gegn ÍBV á heimavelli, KA á útivelli, Aftureldingu á útivelli, gegn Val á útivelli og gegn Fram á heimavelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert