Skaut Breiðabliki í úrslitaleikinn

Berglind Björg Þorvaldsdóttir kemur Breiðabliki yfir í kvöld gegn sínum …
Berglind Björg Þorvaldsdóttir kemur Breiðabliki yfir í kvöld gegn sínum gömlu félögum. mbl.is/Eggert

Andrea Rut Bjarnadóttir reyndist hetja Breiðabliks þegar liðið tók á móti Val í undanúrslitum deildabikars kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.

Leiknum lauk með naumum sigri Breiðabliks, 2:1, en Andrea Rut skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Breiðabliki yfir á 19. mínútu gegn sínum gömlu liðsfélögum en hún gekk til liðs við Breiðablik frá Val fyrr í vetur.

Á 44. mínútu fékk Ísabella Sara Tryggvadóttir að líta gula spjaldið og einungis þremur mínútum síðar fékk hún sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Þrátt fyrir að leika einum manni færri í síðari hálfleiks tókst Fanndísi Friðriksdóttur að jafna metin fyrir Val á 63. mínútu.

Andrea skoraði svo sigurmarkið á 88. mínútu og skaut Breiðabliki áfram í úrslitaleikinn þar sem liðið mætir annaðhvort Þór/KA eða Stjörnunni, föstudaginn 28. mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert