Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik, kveðst ósammála Lárusi Orra Sigurðssyni, sparkspekingi hjá Stöð 2 Sport, sem ráðlagði eldri leikmönnum karlalandsliðsins í knattspyrnu að yfirgefa leikinn áður en leikurinn yfirgefur þá.
Lárus Orri nefndi sérstaklega frammistöðu Arons Einars Gunnarssonar sem átti erfitt uppdráttar í tveimur leikjum Íslands gegn Kósovó í yfirstandandi landsleikjaglugga.
„Mikið rosalega er ég ósammála þessu. Þarna er maður að fórna sèr fyrir liðið eins lengi og þörf er á hans kröftum. Þetta snýst, allavega hjá mèr, ekki um einhvern fullkominn endi. Persónulega mun ég spila fyrir landsliðið þangað til að ég er ekki valinn og tek því hlutverki sem mèr er gefið.
Landsliðið á ekki að snúast um einstaklinginn og ef èg væri bara að hugsa um sjálfan mig, minn spiltíma eða mína arfleifð, þá væri èg löngu hættur. Ég er nefnilega líka að þessu fyrir strákana, þjóðina, börnin mín ofl. Held að Aron, Gylfi o.fl. sèu á svipuðum stað,“ skrifaði Björgvin Páll á Facebook-síðu sinni.