Þótt íslenska karlalandsliðið í fótbolta sé í miklum mótvindi um þessar mundir er óhætt að segja að frammistaða nýja landsliðsfyrirliðans, Orra Steins Óskarssonar, sé einn af jákvæðustu punktunum í leikjum þess á undanförnum mánuðum.
Orri hefur skorað sjö mörk í fyrstu sextán landsleikjum sínum og aðeins fjórir íslenskir landsliðsmenn í sögunni hafa verið fljótari að ná þeim markafjölda í landsleikjum.
Þar er Ríkharður Jónsson frá Akranesi fremstur í flokki en þegar hann skoraði öll fjögur mörk Íslands í sigrinum fræga á Svíum árið 1951 hafði hann skorað sex mörk í fyrstu fjórum landsleikjum sínum. Sjöunda markið kom í fimmta leiknum mánuði síðar, gegn Noregi.
Guðmundur Steinsson skoraði sjö mörk í fyrstu ellefu landsleikjum sínum á níunda áratug síðustu aldar og Kolbeinn Sigþórsson lék sama leik í sínum fyrstu ellefu landsleikjum á árunum 2010 til 2012.
Þórður Þórðarson frá Akranesi, samherji Ríkharðs, var hinn helsti markaskorari landsliðsins á sjötta áratug síðustu aldar og skoraði sjö mörk í fyrstu fimmtán landsleikjunum.
Nánari umfjöllun um Orra og samanburð á öllum sem hafa skorað 7 mörk eða fleiri fyrir íslenska karlalandsliðið má nálgast á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.