Pétur Georg Markan, bæjarstjóri Hveragerðis, hefur fengið félagaskipti í Hamar og gæti tekið skóna fram í sumar eftir að hafa síðast spilað með Herði á Ísafirði sumarið 2018.
Pétur Georg er 44 ára gamall og lék á sínum tíma 43 leiki í efstu deild og skoraði í þeim 13 mörk fyrir Fjölni, Val og Víking úr Reykjavík.
„Pétur Markan skipti yfir, bæjarstjórinn sjálfur. Hann sagðist geta tekið einhverjar mínútur í sumar ef vantaði. Ég sá hann á firmamóti um síðustu helgi og hann leit ágætlega út þar.
Við sjáum hvort hann geti ekki komið með einhverjar innkomur síðustu tíu mínúturnar eða eitthvað. Við erum að sækja í reynsluna. Það eru ekki mörg lið sem eru með bæjarstjórann í hóp,“ sagði Valdimar Unnar Jóhannsson, þjálfari Hamars, í samtali við Fótbolta.net.
Hamar leikur í 4. deild í sumar.