Víkingur úr Reykjavík er á leiðinni í sitt annað tímabil í röð í Bestu deild kvenna í knattspyrnu en snöggur uppgangur hefur verið hjá liðinu.
Víkingskonur höfnuðu í þrðja sæti deildarinnar sem nýliðar í fyrra og urðu bikarmeistarar sumarið 2023.
Víkingsliðið hefur einblínt á að byggja upp lið sitt á ungum íslenskum leikmönnum. Selma Dögg Björgvinsdóttir fyrirliði liðsins segir það hafa verið mjög gefandi að vera hluti af þessari vegferð.
„Þessi árangur sem við höfum náð hefur að mestu leyti verið byggður á íslenskum leikmönnum sem eru uppaldir hjá félaginu. Það er frábært að vera partur af einhverju sem hefur verið í þróun í mörg ár. Við höfum það yfir önnur félög, að hafa verið á þessari vegferð í langan tíma,“ sagði Selma Dögg í samtali við mbl.is.
Er þá enn meira gefandi að fá að leiða þetta lið?
„Já, það er mjög gefandi. Þessi hópur er alveg einstakur. Langbesta liðsheild sem ég hef verið hluti af. Við erum búin að ná góðum árangri og upplifa margt saman sem hópur. Þó að margar í liðinu séu ekki orðnar tvítugar eru þær mjög reynslumiklar eftir síðustu ár.“
Víkingur úr Reykjavík hafnar í 5. sæti samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is sem birtist í blaðinu sl. fimmtudag. Víkingur fær Þór/KA í heimsókn í Fossvoginn í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á miðvikudaginn.