Þetta lítur vel út

Álfhildur Rósa Kjartansdóttir er fyrirliði Þróttar.
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir er fyrirliði Þróttar. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Álf­hild­ur Rósa Kjart­ans­dótt­ir, fyr­irliði Þrótt­ar úr Reykja­vík, er mjög spennt fyr­ir kom­andi tíma­bili í Bestu deild­inni í knatt­spyrnu. 

Þrótt­ur hafnaði í fimmta sæti í fyrra en liðið hef­ur styrkt sig vel fyr­ir kom­andi tíma­bil og meðal ann­ars fengið Katie Cous­ins til baka frá Val. 

Hvernig leggst tíma­bilið í ykk­ur?

„Ótrú­lega vel. Við erum búin að styrkja okk­ur vel þetta tíma­bil og það hef­ur gengið vel á und­ir­bún­ings­tíma­bil­inu. Æfing­arn­ar ganga vel og liðið hef­ur komið vel sam­an. Við erum mjög spennt­ar fyr­ir sumr­inu, sem er al­veg að koma,“ sagði Álf­hild­ur í sam­tali við mbl.is. 

Með stór­an hóp 

Staðan á leik­manna­hópi Þrótt­ar er góð sam­kvæmt Álf­hildi Rósu en Sierra Marie Lelli er sú eina sem er frá enda enn að jafna sig af kross­bands­sliti. 

„Við erum með stór­an hóp og góða leik­menn bæði inn á vell­in­um og á bekkn­um í öll­um stöðum. Þetta lít­ur vel út. 

Sierra er enn að koma til baka eft­ir kross­bands­slit en fyr­ir utan það eru eng­in al­var­leg meiðsli.“

Gera bet­ur en í fyrra

Þrótt­ar­ar byrjaði síðasta tíma­bil held­ur brös­ug­lega og var í neðsta sæti. Aft­ur á móti kom liðið vel inn þegar leið á tíma­bilið og náði að koma sér í efri hlut­ann. 

„Tíma­bilið byrjaði mjög illa, úr­slit­in voru ekki góð. Við vor­um ennþá í ákveðni upp­bygg­ingu með nýj­an þjálf­ara og við þurft­um að læra á það, ný kerfi og alls kon­ar.

Það tók smá tíma fyr­ir okk­ur að kom­ast á al­menni­legt skrið. Síðan gekk bet­ur um mitt tíma­bilið og við náðum að koma okk­ur í efri hlut­ann sem var mark­miðið. Á heild­ina litið var ég ekk­ert sér­lega ósátt við tíma­bil, við vilj­um bara byrja bet­ur en í fyrra.“

Hvert er þá mark­miðið í ár?'

„Þetta klass­íska, að gera bet­ur en í fyrra. Við vilj­um vera þarna á toppn­um og vera berj­ast um fyrsta og annað sætið, vera í þess­ari topp­bar­áttu. Við eig­um að geta gert það, eig­um að geta sótt stig gegn öll­um liðum. Mark­miðið er að vera í efri hlut­an­um og topp­bar­áttu,“ bætti Álf­hild­ur Rósa við. 

Þrótt­ur úr Reykja­vík hafn­ar í 3. sæti sam­kvæmt spá Morg­un­blaðsins og mbl.is sem birt­ist í blaðinu sl. fimmtu­dag. Þrótt­ur fær Fram í heim­sókn í Laug­ar­dal­inn í fyrstu um­ferð Bestu deild­ar­inn­ar á morg­un. 

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert