Þarf að aðlagast Valsumhverfinu

Elísa Viðarsdóttir.
Elísa Viðarsdóttir. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Elísa Viðars­dótt­ir, fyr­irliði Vals í knatt­spyrnu, er mjög ánægð með leik­manna­hóp liðsins nú þegar keppni í Bestu deild­inni fer senn að hefjast.

„Staðan er nokkuð góð. Það eru auðvitað ein­hver meiðsli hér og þar, ein­hver smotte­rísmeiðsli, en að öðru leyti er staðan góð. Við erum líka að efl­ast með því að fá fleiri inn á æf­ing­ar. Elín Metta [Jen­sen] er kom­in, Arna Sif [Ásgríms­dótt­ir] og von­andi Anna Björk [Kristjáns­dótt­ir].

Það gef­ur auga leið að þetta eru stór­ir prófíl­ar sem verður gott að fá inn í æf­inga­hóp­inn til viðbót­ar við þann frá­bæra hóp sem við erum með fyr­ir. Staðan á hópn­um er flott,“ sagði Elísa í sam­tali við mbl.is.

Tek­ur alltaf tíma

Nokk­ur fjöldi leik­manna er horf­inn á braut og annað eins magn hef­ur komið í staðinn. Spurð hvernig nýju leik­mönn­un­um hef­ur gengið að aðlag­ast hjá Val sagði hún:

„Þær hafa komið vel inn í þetta. Það þarf auðvitað að aðlag­ast Vals­um­hverf­inu, sem tek­ur alltaf tíma. Svo erum við sem erum bún­ar að vera leng­ur að hjálpa þeim að aðlag­ast þessu um­hverfi.

Við ger­um okk­ar besta í að leiðbeina þannig að þær aðlag­ist hratt og ör­ugg­lega. Ég held að fólk sé al­veg að aðlag­ast þokka­lega.“

Val­ur hafn­ar í 2. sæti sam­kvæmt spá Morg­un­blaðsins og mbl.is sem birt­ist í blaðinu sl. fimmtu­dag. Val­ur fær FH í heim­sókn á Hlíðar­enda í fyrstu um­ferð Bestu deild­ar­inn­ar klukk­an 18 annað kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert