Var fáránlega erfitt

Berglind Björg Þorvaldsdóttir er ánægð með að vera komin aftur …
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er ánægð með að vera komin aftur heim í Breiðablik eftir erfitt tímabil hjá Val á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það leggst mjög vel í mig. Ég er mjög spennt að byrja þetta tíma­bil eft­ir lang­an og strang­an vet­ur,“ sagði knatt­spyrnu­kon­an Berg­lind Björg Þor­valds­dótt­ir, sókn­ar­maður Íslands­meist­ara Breiðabliks, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Berg­lind, sem er 33 ára göm­ul, er óðum að ná fyrri kröft­um, eft­ir að hafa eign­ast sitt fyrsta barn, son­inn Þor­vald Atla, í des­em­ber árið 2023 er hún var á mála hjá Par­ís SG í Frakklandi og leikið með Val á síðasta tíma­bili.

„Staðan á mér er fín. Und­ir­bún­ings­tíma­bilið gekk mjög vel. Nik [Cham­berlain þjálf­ari], sjúkraþjálf­ar­inn og styrkt­arþjálf­ar­inn pössuðu all­ir mjög vel upp á mig og vildu ekki að ég færi of geyst af stað.

Við vor­um að byggja mig upp og það gekk ótrú­lega vel. Ég hef ekki fundið fyr­ir neinu í vet­ur. Ég var í miklu basli síðasta sum­ar en hef verið mjög góð í vet­ur. Þannig að það er allt að ger­ast. Ég er kom­in í fínt stand,“ út­skýrði hún.

Kannski ekki skyn­sam­legt

Berg­lind fer ekki í graf­göt­ur með það að erfiðleik­ar henn­ar á síðasta tíma­bili, þar sem Berg­lind skoraði þó fjög­ur mörk fyr­ir Val í 13 leikj­um í Bestu deild­inni, hafi tengst því að hún eignaðist sitt fyrsta barn nokkr­um mánuðum áður.

„Al­veg klár­lega. Ég byrjaði að æfa þrem­ur mánuðum eft­ir barns­b­urð. Þótt mér hafi liðið mjög vel á þeim tíma var það kannski ekki skyn­sam­legt þegar ég lít til baka. Ég náði í raun­inni ekk­ert að byggja mig upp því ég var ein að æfa.

Svo rifti ég við PSG svo að ég gæti skrifað und­ir hjá Val og svo var bara komið tíma­bil. Þannig að við tók­um kannski tvær vik­ur í að reyna að byggja mig upp og svo byrjaði tíma­bilið. Svo var ég rosa mikið að elta liðið í formi og styrk allt sum­arið auk þess að vera með ný­fætt barn heima. Þannig að þetta var fá­rán­lega erfitt,“ sagði Berg­lind.

Viðtalið við Berg­lindi má lesa í heild sinni á íþrótt­asíðum Morg­un­blaðsins í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert