Tekur slaginn með Leikni

Óskar Jónsson.
Óskar Jónsson. mbl.is/Óttar Geirsson

Knatt­spyrnumaður­inn Óskar Jóns­son mun spila með Leikni úr Reykja­vík í næ­stefstu deild í sum­ar en hann kem­ur þangað frá Fram. 

Óskar sleit kross­band á æf­ingu í janú­ar 2024 og missti því af öllu síðasta tíma­bili en fyr­ir það spilaði hann 22 af 27 leikj­um liðsins þegar liðið hélt sér naum­lega uppi í Bestu deild.

Hann er upp­al­inn hjá Breiðabliki en hef­ur einnig leikið með Gróttu í efstu deild og svo Þrótti úr Reykja­vík, ÍR og Þór.

Leikn­ir lenti í 8. sæti í næ­stefstu deild í fyrra með  28 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert