Erum að leita logandi ljósi

Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í kvöld.
Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í kvöld. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Rún­ar Krist­ins­son, þjálf­ari Fram, var að von­um kát­ur er hann mætti í viðtal til mbl.is eft­ir ör­ugg­an 3:0-sig­ur liðsins gegn Aft­ur­eld­ingu í Bestu deild karla í knatt­spyrnu.

„Frá­bær sig­ur og frá­bært svar við lé­leg­um leik okk­ar í Vest­manna­eyj­um. Menn lögðu á sig mikla vinnu, mikla bar­áttu og það þurfti svo sann­ar­lega til gegn spræku og mjög góðu liði Aft­ur­eld­ing­ar.

Þeir þrýstu okk­ur oft í fyrri hálfleik og þó að við vær­um í stöðunni 2:0 í hálfleik þá fannst mér það ekki al­veg gefa rétta mynd. Við hefðum al­veg getað skorað fleiri og við björg­um oft mjög vel og Vikt­or [Freyr Sig­urðsson] var frá­bær í mark­inu,“ sagði Rún­ar.

„Menn þorðu að spila fót­bolta. Við fór­um í hápressu og spiluðum svo­lítið maður á mann á móti þeim og vild­um reyna að stela bolt­an­um af þeim hátt á vell­in­um því þeir eru dug­leg­ir að spila út úr vörn.

Við náðum kannski aðeins að hrista upp í þeim og hræða þá með því að stela bolt­an­um af þeim nokkr­um sinn­um. Þá verður meira óör­yggi í þeirra leik,“ bætti Rún­ar við. 

Er þetta besti leik­ur­inn ykk­ar í sum­ar?

„Svona heilt yfir í 90 mín­út­ur þá vor­um við nokkuð góðir. Í seinni hálfleikn­um erum við meira að verj­ast en við eig­um fín upp­hlaup sem drepa leik­inn. Þannig heilt yfir í 90 mín­út­ur, kannski það besta.“

Fram missti markvörðinn Ólaf Íshólm Ólafs­son í gær en hann yf­ir­gaf fé­lagið eft­ir að hafa verið ósátt­ur með ákvörðun Rún­ars að setja hann á bekk­inn. Rún­ar seg­ir fé­lagið vera að leita að nýj­um markverði en fé­laga­skipta­glugg­inn lok­ar á morg­un.

„Við erum bara að leita að mark­manni til að bæta í leik­manna­hóp­inn okk­ar til að hafa fleiri mark­menn á æf­ing­um. Við erum bara með tvo eins og staðan er og ann­ar er í öðrum flokki og hann þarf að spila leiki þar. Við þurf­um að geta æft með tvo mark­menn þannig að við þurf­um að fá einn í viðbót inn í teymið og erum að leita log­andi ljósi að ein­hverj­um mögu­leika í því,“ sagði Rún­ar.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert