Ungi Blikinn fer í Hafnarfjörðinn

Dagur Örn Fjeldsted stekkur upp í leik HK gegn KA …
Dagur Örn Fjeldsted stekkur upp í leik HK gegn KA í sumar en hann var á láni hjá liðinu. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Knatt­spyrnumaður­inn ungi Dag­ur Örn Fjeld­sted er geng­inn til liðs við FH frá Breiðabliki á láns­samn­ingi út tíma­bilið. 

FH hef­ur síðan kauprétt og get­ur keypt leik­mann­inn að lok láns­samn­ingn­um. 

Dag­ur Örn, sem varð tví­tug­ur í gær, hef­ur leikið 21 leik í efstu deild og skoraði tvö mörk. 

Dag­ur lék átta leiki með Breiðabliki á síðustu leiktíð í deild­inni en fór síðan á láni til HK síðustu mánuði tíma­bils­ins. 

FH-ing­ar fara illa af stað í deild­inni og eru í neðsta sæti með aðeins eitt stig eft­ir fjóra leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert