Þróttur upp að hlið toppliðanna

Jelena Tinna Kujundzic og Bergþóra Sól Ásmundsdóttir eigast við í …
Jelena Tinna Kujundzic og Bergþóra Sól Ásmundsdóttir eigast við í leik liðanna á síðustu leiktíð. mbl.is/Eyþór Árnason

Þrótt­ur gerði góða ferð í Foss­vog­inn og sigraði Vík­ing, 1:0, í Reykja­vík­urslag í 3. um­ferð Bestu deild­ar kvenna í fót­bolta í kvöld. Þrótt­ur er eitt fjög­urra liða á toppn­um með sjö stig. Vík­ing­ur er í sjötta sæti með þrjú stig.

Þrótt­ar­ar voru sterk­ari í fyrri hálfleik og Freyja Karín Þor­varðardótt­ir fékk úr­vals­færi til að skora fyrsta markið á 15. mín­útu en hún lagði bolt­ann yfir markið af stuttu færi.

Fimm mín­út­um síðar kom markið og var það sjálfs­mark. Katie Cous­ins átti þá skot af stuttu færi og bolt­inn í stöng­ina, í bakið á Sig­ur­borgu Kötlu Svein­björns­dótt­ur í marki Vík­ings og í netið.

Carol­ine Murray og Unn­ur Dóra Bergs­dótt­ir spreyttu sig líka með skot­um utan teigs. Sig­ur­borg Katla varði frá þeirri fyrr­nefndu og Unn­ur setti bolt­ann rétt fram­hjá. Þór­dís Elva Ágúst­dótt­ir átti einnig hættu­legt skot á 41. mín­útu en aðeins fram­hjá.

Vík­ing­ar sköpuðu sér sára­lít­il í hálfleik­um og var staðan eft­ir fyrri 45 mín­út­urn­ar því 1:0, Þrótti í vil.

Báðum liðum gekk mjög illa að skapa sér færi í seinni hálfleik. Kom það fyrsta á 70. mín­útu þegar Sæ­unn Björns­dótt­ir skaut yfir af 20 metra færi. Bergþóra Sól Ásmunds­dótt­ir slapp inn fyr­ir vörn Þrótt­ar á 81. mín­útu en lagði bolt­ann fram­hjá fjær­stöng­inni úr úr­vals­færi.

Mörk­in urðu hins veg­ar ekki fleiri og Þrótt­ur fagnaði sterk­um útisigri.

Vík­ing­ur R. 0:1 Þrótt­ur R. opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert