3. umferð: Fimm náðu stórum áföngum

Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, í baráttu við Söndru María Jessen, …
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, í baráttu við Söndru María Jessen, fyrirliða Þórs/KA, í sínum 250. deildaleik á ferlinum. mbl.is/Ólafur Árdal

Fimm leik­menn í Bestu deild kvenna í fót­bolta náðu stór­um áföng­um á ferl­in­um í þriðju um­ferð deild­ar­inn­ar sem lauk með tveim­ur leikj­um í gær­kvöld.

Elísa Viðars­dótt­ir, fyr­irliði Vals, lék sinn 250. deilda­leik á ferl­in­um þegar Val­ur vann Þór/​KA 3:0 á sunnu­dag­inn. Hún er 29. knatt­spyrnu­kon­an frá upp­hafi sem nær þeim leikja­fjölda en landsliðskon­urn­ar Dagný Brynj­ars­dótt­ir (259) og Guðrún Arn­ar­dótt­ir (251) eru báðar ný­bún­ar að ná hon­um.

Af þess­um leikj­um hjá Elísu er 171 leik­ur í efstu deild hér á landi með Val og ÍBV og 41 leik­ur með Kristianstad í sænsku úr­vals­deild­inni.

Heiðdís Lillýjardóttir hefur leikið 200 deildaleiki á ferlinum.
Heiðdís Lillýj­ar­dótt­ir hef­ur leikið 200 deilda­leiki á ferl­in­um. mbl.is/​Eyþór Árna­son

Heiðdís Lillýj­ar­dótt­ir, varn­ar­maður Breiðabliks, lék sinn 200. deilda­leik á ferl­in­um þegar Blikar unnu Fram 7:1 og hún hélt upp á það með því að skora fyrsta mark leiks­ins. Af þess­um leikj­um eru 129 í efstu deild hér á landi með Breiðabliki og Sel­fossi en fyrstu 60 leik­ina lék Heiðdís með Hetti í 1. deild.

María Eva Eyjólfsdóttir - 150 leikir í deildinni.
María Eva Eyj­ólfs­dótt­ir - 150 leik­ir í deild­inni. mbl.is/​Eyþór Árna­son

María Eva Eyj­ólfs­dótt­ir úr Þrótti lék sinn 150. leik í efstu deild þegar lið henn­ar vann Vík­ing 1:0 í Foss­vogi í gær­kvöld. Af þeim eru 59 fyr­ir Þrótt, 58 fyr­ir Stjörn­una og 33 fyr­ir Fylki.

Arna Eiríksdóttir - 100 leikir í efstu deild.
Arna Ei­ríks­dótt­ir - 100 leik­ir í efstu deild. Ljós­mynd/​Krist­inn Steinn

Arna Ei­ríks­dótt­ir lék sinn 100. leik í efstu deild þegar FH vann FHL 3:1 á sunnu­dag­inn og hún hélt upp á það með því að skora tvö marka Hafn­ar­fjarðarliðsins. Leik­irn­ir eru 19 fyr­ir HK/​Vík­ing, 19 fyr­ir Val, 16 fyr­ir Þór/​KA og 46 fyr­ir FH.

Kristín Dís Árnadóttir - 100 leikir í efstu deild.
Krist­ín Dís Árna­dótt­ir - 100 leik­ir í efstu deild. mbl.is/​Karítas Sveina Guðjóns­dótt­ir

Krist­ín Dís Árna­dótt­ir lék sinn 100. leik í efstu deild hér á landi þegar Breiðablik vann Fram í gær­kvöld. All­ir hundrað leik­irn­ir eru fyr­ir Breiðablik en Krist­ín hef­ur líka leikið 28 leiki í dönsku úr­vals­deild­inni með Brönd­by.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert