Breiðablik með flest M í Bestu deildinni

Kristín Dís Árnadóttir og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir í viðureign Þróttar …
Kristín Dís Árnadóttir og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir í viðureign Þróttar og Breiðabliks, tveggja efstu liðanna í M-gjöfinni. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Íslands­meist­ar­ar Breiðabliks hafa farið vel af stað í Bestu deild kvenna í vor og eru á toppn­um eft­ir þrjár um­ferðir.

Blika­kon­ur eru líka í efsta sæt­inu í ein­kunna­gjöf Morg­un­blaðsins, M-gjöf­inni, en þær hafa fengið sam­tals 18 M fyr­ir þrjá fyrstu leiki sína, eða sex að meðaltali í hverj­um leik.

Þrótt­ur er á hæl­um Blika en lið Þrótt­ar hef­ur fengið sam­tals 17 M úr sín­um þrem­ur fyrstu leikj­um.

Einu stig­in sem Breiðablik og Þrótt­ur hafa tapað var í inn­byrðis jafn­tefli þeirra, 2:2, í ann­arri um­ferðinni.

Stjarn­an hef­ur hins veg­ar fengið fæst M allra í fyrstu þrem­ur um­ferðunum, aðeins sex tals­ins.

Liðin tíu í deild­inni fengu M eins og hér seg­ir í þrem­ur fyrstu um­ferðunum:

18 Breiðablik
17 Þrótt­ur
16 FH
15 Þór/​KA
14 Val­ur
13 Vík­ing­ur
12 Tinda­stóll
  9 Fram
  8 FHL
  6 Stjarn­an

Í ein­kunna­gjöf Morg­un­blaðsins, sem birt­ist jafn­an dag­inn eft­ir viðkom­andi leik, fá leik­menn eitt M fyr­ir góðan leik, tvö M fyr­ir mjög góðan leik og þrjú M fyr­ir frá­bær­an leik.

Fjórða um­ferð Bestu deild­ar kvenna er öll leik­in í dag, laug­ar­dag, og eru leik­irn­ir sem hér seg­ir:

14.00 Fram - FHL
14.00 Breiðablik - Vík­ing­ur
14.30 Þór/​KA - FH
17.00 Þrótt­ur - Tinda­stóll
17.00 Stjarn­an - Val­ur

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert