Varamaðurinn skoraði þrennu í stórsigri

Hrafn Guðmundsson er kominn til KFA og byrjaði glæsilega en …
Hrafn Guðmundsson er kominn til KFA og byrjaði glæsilega en hann skoraði þrennu á rúmum 20 mínútum í fyrsta leiknum. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Aust­fjarðaliðið KFA fékk fljúg­andi start í 2. deild­ar­keppn­inni í knatt­spyrnu þegar það rót­burstaði Kor­mák/​Hvöt, 8:1, í fyrstu um­ferð deild­ar­inn­ar í Fjarðabyggðar­höll­inni á Reyðarf­irði í gær.

Hrafn Guðmunds­son, sem lék með KR í fyrra en gekk til liðs við Stjörn­una í vet­ur og er í láni þaðan fyr­ir aust­an, kom inn á sem varamaður hjá KFA þegar 25 mín­út­ur voru til leiks­loka. Eft­ir fimm mín­út­ur hafði hann skoraði tvö mörk og náði þrenn­unni á loka­mín­útu leiks­ins.

Jacqu­es Bayo Mben skoraði tvö mörk fyr­ir KFA og þeir Mat­heus Bissi, Pat­rek­ur Aron Grét­ars­son og fyr­irliðinn Unn­ar Ari Hans­son eitt mark hver. Akil De Freitas skoraði fyr­ir Kor­mák/​Hvöt og jafnaði þá 1:1, en Hún­vetn­ing­arn­ir misstu Moussa Sidi­be af velli með rautt spjald á 30. mín­útu, þegar staðan var 3:1, og fengu á sig fimm mörk á síðustu 25 mín­út­un­um.

Þrótt­ur úr Vog­um gerði góða ferð á Akra­nes og vann Kára 2:1 í Akra­nes­höll­inni. Guðni Sigþórs­son og Jó­hann­es Karl Bárðar­son skoruðu á fyrstu 18 mín­út­un­um fyr­ir Þrótt­ara en Sig­urður Hrann­ar Þor­steins­son minnkaði mun­inn fyr­ir Kára í blá­lok­in.

Ingólfur Sigurðsson bjargaði Ólafsvíkingum í Garðinum.
Ingólf­ur Sig­urðsson bjargaði Ólafs­vík­ing­um í Garðinum. Ljós­mynd/Þ​órður Arn­ar Þórðar­son

Víðir og Vík­ing­ur frá Ólafs­vík, tvö fé­lög sem hafa leikið í efstu deild, skildu jöfn í Garðinum, 1:1. Dom­inic Lee Briggs skoraði fyr­ir Víði á 14. mín­útu en Ingólf­ur Sig­urðsson bjargaði Óls­ur­um þegar hann jafnaði met­in í upp­bót­ar­tíma leiks­ins.

Grótta lék heima­leik á Hlíðar­enda og gerði þar jafn­tefli við Hött/​Hug­in, 1:1. Þór­hall­ur Ási Aðal­steins­son kom Aust­f­irðing­un­um yfir á 57. mín­útu og allt stefndi í  sig­ur þeirra en Björg­vin Stef­áns­son jafnaði fyr­ir Gróttu á 90. mín­útu.

Björgvin Stefánsson jafnaði fyrir Gróttu í blálokin gegn Hetti/Hugin.
Björg­vin Stef­áns­son jafnaði fyr­ir Gróttu í blá­lok­in gegn Hetti/​Hug­in. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Þriðja 1:1 jafn­teflið var á Dal­vík þar sem Dal­vík/​Reyn­ir og Hauk­ar skildu jöfn. Fann­ar Óli Friðleifs­son skoraði fyr­ir Hauka strax á 3. mín­útu en Migu­el De Freitas jafnaði fyr­ir Dal­vík­inga und­ir lok fyrri hálfleiks og þar við sat.

Þá gerðu KFG og Ægir marka­laust jafn­tefli í fyrsta leik deild­ar­inn­ar í Garðabæ á föstu­dags­kvöldið.

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert