Vestri hafði betur gegn ÍBV í 5. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Þórsvelli í Vestmannaeyjum í dag, 2:0. Með sigrinum tyllti Vestri sér á topp deildarinnar með 10 stig en ÍBV er í fjórða sætinu með 7 stig.
Leikurinn byrjaði rólega og lítið að gerast. ÍBV var mun meira með boltann án þess að ná að skapa sér alvöru færi, eða ógna marki Vestra af einhverju viti. Það var mikill hiti í leiknum og var gula spjaldinu lyft 5 sinnum. Þegar tíðindalítill fyrri hálf leikurinn var að renna sitt skeið fékk Vestri einkast úti hægra megin. Pedersen grýtti boltanum í átt að teignum og myndaðist mikið klafs.
Eiður Aron kom boltanum út til hægri á Olsen sem átti frábæra fyrir gjöf og Túfa skallaði boltann í markið. 1:0 fyrir Vestra eftir 44 mínútur. Það verður seint sagt að markið hafi legið í loftinu. Vestri var svo nærrum því búnir að tvöfalda forystuna í lok hálfleiksins. Þá var sama uppskrift og í markinu en skalli Daða Bergs sigldi fram hjá. Leikplan gestanna gekk fullkomlega upp í fyrri hálfleik, leyfðu heimamönnum að vera með boltann og sóttu hratt þegar þeir unnu hann.
Seinni hálfleikurinn var eins og sá fyrri. ÍBV var meira með boltann en Vestri hættulegir þegar þeir sóttu hratt. ÍBV komst í góðar stöður en náði lítið að koma sér í færi í byrjun. Daði Berg var nálægt því að tvöfalda forystuna í byrjun seinni hálfleiks. Túfa brunar upp völlinn og kemur boltanum á Daða sem kemst einn í gegn en Marcel ver stórkostlega og heldur heimamönnum inn í leiknum.
ÍBV reyndi hvað þeir gátu að jafna leikinn en voru einhvern vegin aldrei nálægt því. Þorlákur Breki átti skot í hliðarnetið og Sigurður Arnar skalla beint á Smit Þeir náðu að skora á 90 mínútu en Sigurður Arnar var réttilega dæmdur rangstæður. Vestri sendi langan bolta fram þar sem Edeland og Marcel misreiknuðu skelfilega , boltinn barst á Daða Berg sem renndi honum til hliðar á Gunnar sem setti boltann í autt markið. 2:0 sigur Vestra staðreynd.
Frábær frammistaða hjá Vestra og leikurinn spilaðist alveg eins og þeir vildu. ÍBV var meira með boltann en þeir völdu réttu tækifærin til að sækja og voru líklegri til að bæta við en ÍBV að jafna. Heimamenn voru ágætir út á velli en vantaði alveg að skapa færi og setja gestina undir pressu.