Bestur í fimmtu umferðinni

Hrannar Snær Magnússon fagnar markinu gegn Stjörnunni ásamt Elmari Kára …
Hrannar Snær Magnússon fagnar markinu gegn Stjörnunni ásamt Elmari Kára Cogic og Axel Óskari Andréssyni. mbl.is/Eyþór Árnason

Hrann­ar Snær Magnús­son, kant­maður hjá Aft­ur­eld­ingu, var besti leikmaður­inn í fimmtu um­ferð Bestu deild­ar karla í fót­bolta að mati Morg­un­blaðsins.

Hrann­ar lék mjög vel þegar nýliðarn­ir lögðu Stjörn­una óvænt en sann­fær­andi að velli í Mos­fells­bæ í fyrra­kvöld, 3:0. Hann skoraði fyrsta markið á glæsi­leg­an hátt snemma leiks og lagði svo upp þriðja markið sem inn­siglaði sig­ur­inn fyr­ir Aron Jó­hanns­son um miðjan síðari hálfleik. Hann fékk tvö M í ein­kunn hjá Morg­un­blaðinu fyr­ir frammistöðu sína.

Hrann­ar er 23 ára gam­all Ólafs­firðing­ur sem lék með liði KF í yngri flokk­un­um, eitt ár með KA, og svo með meist­ara­flokki KF í 3. og 2. deild frá 2018 til 2022, að einu ári und­an­skildu hjá KH í Reykja­vík í 3. deild­inni.

Grein­in í heild sinni er í Morg­un­blaðinu í dag og þar er birt úr­vals­deild 5. um­ferðar Bestu deild­ar karla. Þetta efni er einnig aðgengi­legt í app­inu Mogg­inn.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert