Klár ef Steini vill hafa mig með

Glódís Perla Viggósdóttir hafði ekki misst af mótsleik með íslenska …
Glódís Perla Viggósdóttir hafði ekki misst af mótsleik með íslenska landsliðinu frá árinu 2013 þegar hún varð að sleppa leikjum liðsins í apríl. mbl.is/Árni Sæberg

Gló­dís Perla Viggós­dótt­ir, fyr­irliði ís­lenska landsliðsins í knatt­spyrnu, reikn­ar með því að vera til­bú­in í slag­inn þegar Ísland leik­ur tvo síðustu leiki sína í Þjóðadeild­inni um næstu mánaðamót.

Gló­dís missti af lands­leikj­um Íslands gegn Nor­egi og Sviss í byrj­un apríl vegna meiðsla í hné sem hún hef­ur glímt við und­an­farna tvo mánuði en von­ast til að spila gegn Nor­egi í Þránd­heimi 30. maí og Frakklandi á heima­velli 3. júní í loka­leikj­um Þjóðadeild­ar­inn­ar. Mánuði síðar, 2. júlí, hef­ur Ísland keppni á EM í Sviss.

„Já, ég vona það. Ef Steini (Þor­steinn Hall­dórs­son landsliðsþjálf­ari) vill hafa mig með, þá verð ég alltaf klár. En ég þarf að passa upp á mig áfram, ég má ekki halda að þó ég hafi náð að spila einn heil­an leik sé ég orðin ósigrandi aft­ur – eins og mér leið áður en ég meidd­ist – en þetta geng­ur gríðarlega vel.

Staðan á mér akkúrat núna er mjög góð og ég sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að ég geti verið með í þeim leikj­um,“ sagði Gló­dís við Morg­un­blaðið en hún lék á fimmtu­dag­inn var sinn fyrsta heila leik með Bayern München í frá því í mars, þegar Bayern varð þýsk­ur bikar­meist­ari með því að sigra Wer­der Bremen 4:2 í úr­slita­leik í Köln.

Ítar­legt viðtal er við Gló­dísi í Morg­un­blaðinu í dag og það er einnig aðgengi­legt í app­inu Mogg­inn.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert