„Ég er mjög ánægður með liðið," sagði Ólafur H. Kristjánsson þjálfari Þróttar við mbl.is eftir góðan útisigur, 3:1, á Val í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna á Hlíðarenda í kvöld.
„Við byrjuðum mjög linlega í leiknum. Valur hafði ákveðið frumkvæði og skoraði eftir hornspyrnu. Síðan fannst mér við vaxa inn í hálfleikinn þegar við vorum með boltann. Við uppskárum mark eftir góða baráttu.
Síðan var geysilegur kraftur í liðinu í seinni hálfleik og mér fannst við hafa mjög góða stjórn á leiknum, bæði þær sem byrjuðu og þær sem komu inn á. Það var framlag frá öllum þannig að ég er ánægður með frammistöðuna.“
Þið byrjið seinni hálfleikinn á að skora mark eftir held ég 22 sekúndur. Það er betra en í leiknum á móti Tindastóli þar sem það voru 27 sekúndur. Þið rotið Val með þessu marki, ekki satt?
„Við allavegana kýldum þær í magann og þær misstu svolítið pústið. Við vitum það líka að eftir síðustu leikina á móti Tindastóli og Víkingum erum við öruggar varnarlega. Liðið er með sjálfstraust.“
Þegar við ræddum saman eftir leikinn á móti Tindastóli þá varstu ánægður með öruggan varnarleik en talaðir um að þið væruð ekki að skora mikið af mörkum. Í kvöld skorið þið þrjú mörk sem telst mjög gott í fótboltaleik.
„Það er mjög gott. Þau komu líka úr öllum áttum. Bakvörður, miðjumaður og framherji skora. Það er bara frábært. Þó svo að senterarnir skori ekki mikið þá er framlagið hjá þeim frábært. Þrjú mörk og þrjú stig. Ég er ánægður með það,“ sagði Ólafur í samtali við mbl.is.
L | U | J | T | Mörk | +/- | Stig | ||
1 | Frakkland | 5 | 5 | 0 | 0 | 12:2 | 10 | 15 |
2 | Noregur | 5 | 1 | 2 | 2 | 3:5 | -2 | 5 |
3 | Ísland | 5 | 0 | 4 | 1 | 6:7 | -1 | 4 |
4 | Sviss | 5 | 0 | 2 | 3 | 4:11 | -7 | 2 |
30.05 | Frakkland | ![]() |
4:0 | ![]() |
Sviss |
30.05 | Noregur | ![]() |
1:1 | ![]() |
Ísland |
08.04 | Noregur | ![]() |
0:2 | ![]() |
Frakkland |
08.04 | Ísland | ![]() |
3:3 | ![]() |
Sviss |
04.04 | Sviss | ![]() |
0:2 | ![]() |
Frakkland |
04.04 | Ísland | ![]() |
0:0 | ![]() |
Noregur |
25.02 | Frakkland | ![]() |
3:2 | ![]() |
Ísland |
25.02 | Noregur | ![]() |
2:1 | ![]() |
Sviss |
21.02 | Frakkland | ![]() |
1:0 | ![]() |
Noregur |
21.02 | Sviss | ![]() |
0:0 | ![]() |
Ísland |
03.06 18:00 | Ísland | ![]() |
: | ![]() |
Frakkland |
03.06 18:00 | Sviss | ![]() |
: | ![]() |
Noregur |
L | U | J | T | Mörk | +/- | Stig | ||
1 | Frakkland | 5 | 5 | 0 | 0 | 12:2 | 10 | 15 |
2 | Noregur | 5 | 1 | 2 | 2 | 3:5 | -2 | 5 |
3 | Ísland | 5 | 0 | 4 | 1 | 6:7 | -1 | 4 |
4 | Sviss | 5 | 0 | 2 | 3 | 4:11 | -7 | 2 |
30.05 | Frakkland | ![]() |
4:0 | ![]() |
Sviss |
30.05 | Noregur | ![]() |
1:1 | ![]() |
Ísland |
08.04 | Noregur | ![]() |
0:2 | ![]() |
Frakkland |
08.04 | Ísland | ![]() |
3:3 | ![]() |
Sviss |
04.04 | Sviss | ![]() |
0:2 | ![]() |
Frakkland |
04.04 | Ísland | ![]() |
0:0 | ![]() |
Noregur |
25.02 | Frakkland | ![]() |
3:2 | ![]() |
Ísland |
25.02 | Noregur | ![]() |
2:1 | ![]() |
Sviss |
21.02 | Frakkland | ![]() |
1:0 | ![]() |
Noregur |
21.02 | Sviss | ![]() |
0:0 | ![]() |
Ísland |
03.06 18:00 | Ísland | ![]() |
: | ![]() |
Frakkland |
03.06 18:00 | Sviss | ![]() |
: | ![]() |
Noregur |