EM-treyjan sækir innblástur í norðurljósin

Natasha Anasi, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Eyþór Wöhler, Telma Ívarsdóttir og …
Natasha Anasi, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Eyþór Wöhler, Telma Ívarsdóttir og Berglind Rós Ágústdóttir. mbl.is/Eyþór

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands kynnti nýja landsliðstreyju á EM-hófi KSÍ og Puma í Lands­bank­an­um í Reykja­stræti í Reykja­vík í dag. 

Puma fram­leiðir sér­stak­ar treyj­ur sem liðið mun spila í í stað hef­bund­inna vara­bún­inga á Evr­ópu­mót­inu í Sviss í sum­ar. 

Treyj­an er sér­hönnuð og sæk­ir inn­blást­ur í hreyf­ing­ar norður­ljós­anna og flæði jök­uláa landsliðsins. 

Treyj­urn­ar eru þá að nær öllu leyti úr end­urunnu efni. 

EM treyj­urn­ar eru vænt­an­leg­ar í sölu á fyr­ir­is­land.is og í all­ar helstu versl­an­ir í lok maí mánaðar. Mjög tak­markað magn verður í sölu hér inn­an­lands.     

Alexandra Jóhannsdóttir og Natasha Anasi í nýju treyjunni.
Al­ex­andra Jó­hanns­dótt­ir og Natasha Anasi í nýju treyj­unni. Ljós­mynd/​KSÍ
Guðmundur Ingi Kristinsson, annar frá vinstri, menntamálaráðherra og Þorvaldur Örlygsson …
Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son, ann­ar frá vinstri, mennta­málaráðherra og Þor­vald­ur Örlygs­son formaður KSÍ, lengst til hægri, í dag. mbl.is/​Eyþór
Helena Ólafsdóttir var mætt.
Helena Ólafs­dótt­ir var mætt. mbl.is/​Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert