John Andrews, þjálfari Víkinga, var að vonum svekktur eftir 2:1-tap Víkinga gegn Fram í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld.
„Mér fannst við setja allt í leikinn, mér fannst við stjórna leiknum, vorum á þeirra vallarhelming mestallan leikinn. Þær fengu nokkrar skyndisóknir en við erum bara að ganga í gegnum kafla þar sem hlutirnir eru ekki að detta fyrir okkur.
Við gefumst aldrei upp og við munum ekki missa trúna því þetta er frábær hópur. Við þurfum núna eitthvað til að detta með okkur,“ sagði John í viðtali við mbl.is eftir leik.
„Þær skoruðu tvö mörk og við eitt, það er eins einfalt og það. Við komumst í góðar stöður og við gerðum það mjög vel en við náðum ekki að koma boltanum í netið svo kannski þurfum við að bæta það.
Stelpurnar hafa verið frábærar á æfingum, í fyrirgjöfum og afgreiðslu. Það er heiður að mæta til leiks með þeim í hverri viku. Hlutirnir eru samt ekki að detta fyrir okkur og við þurfum bara að bíða eftir því. Á meðan við bíðum eftir heppninni höldum við áfram að vinna.“
Þrjú stig í fyrstu fimm leikjunum, það hlýtur að vera svekkjandi fyrir ykkur?
„Já, þegar það kemur að stigum er þetta svekkjandi byrjun. Í leiknum gegn Þrótti vorum við frábærar, í leiknum gegn Breiðablik í síðustu viku vorum við mjög góðar og í kvöld fannst mér við vera sterkar en lukkan var ekki með okkur í liði,“ sagði Andrews.
Þið mætið Þrótti í Bikarnum á mánudaginn, hvernig leggst leikurinn í liðið?
„Þú veist hvernig ég er, ég get ekki beðið. Þetta er búið núna, við erum svekktar eftir leikinn en við höldum bara áfram. Við getum mögulega tekið smá pressu af okkur í deildinni núna og notið þess á mánudagskvöld,“ sagði Andrews að lokum.