Leik KR og ÍBV seinkað

Atli Sigurjónsson og Arnar Breki Gunnarsson í leik liðanna sumarið …
Atli Sigurjónsson og Arnar Breki Gunnarsson í leik liðanna sumarið 2023. mbl.is/Óttar

Leik KR og ÍBV í Bestu deild karla í knatt­spyrnu sem fer fram á morg­un hef­ur verið seinkað um tvær klukku­stund­ir vegna færðar frá Vest­manna­eyj­um.

Um heima­leik KR er að ræða en hann fer fram á Þrótt­ar­velli í Laug­ar­dal. Upp­haf­lega átti hann að hefjast klukk­an 17.

Nýr leiktími er hins veg­ar klukk­an 19 þar sem Eyja­menn freista þess að kom­ast til höfuðborg­ar­inn­ar þegar vonsku­veður geng­ur niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert