Nýliðarnir lögðu Víking í Fossvoginum

Nýliðar Fram unnu góðan 2:1-sig­ur gegn Vík­ing­um í Bestu deild kvenna í knatt­spyrnu í Foss­vog­in­um í kvöld.

Úrslit­in þýða að Fram er í sjötta sæti með sex stig en Vík­ing­ar eru í átt­unda sæti með þrjú stig.

Leik­ur­inn fór afar ró­lega af stað og var lítið um færi fyrsta hálf­tím­ann. Vík­ing­ar voru meira með bolt­ann en ógnuðu marki Fram lítið. 

Á 35. mín­útu komst Fram yfir eft­ir mark frá Öldu Ólafs­dótt­ur. Bolt­inn datt fyr­ir Öldu ut­ar­lega í teign­um sem skoraði með hnit­miðuðu skoti í vinstra hornið, 1:0.

Framarar fagna eftir að Alda Ólafsdóttir kom þeim yfir á …
Fram­ar­ar fagna eft­ir að Alda Ólafs­dótt­ir kom þeim yfir á Vík­ings­vell­in­um í kvöld. Ljós­mynd/​Krist­inn Steinn

Allt stefndi í að Fram­ar­ar myndu fara með 1:0 for­ystu í hálfleik­inn en í upp­bót­ar­tím­an­um jafnaði Ísfold Marý Sig­tryggs­dótt­ir. Það kom eft­ir fyr­ir­gjöf frá Gígju Val­gerði Harðardótt­ir á miðjan teig­inn þar sem Ísfold var mætt og skallaði bolt­ann í netið. 

Staðan var því 1:1 í hálfleik.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Gígja Valgerður Harðardóttir fagna eftir að …
Ísfold Marý Sig­tryggs­dótt­ir og Gígja Val­gerður Harðardótt­ir fagna eft­ir að Ísfold jafnaði fyr­ir Vík­ing með síðustu snert­ingu fyrri hálfleiks eft­ir send­ingu frá Gígju. Ljós­mynd/​Krist­inn Steinn

Síðari hálfleik­ur fór fjör­lega af stað. Fyr­irliðinn Berg­dís Sveins­dótt­ir fékk gott færi til að koma Vík­ing­um yfir eft­ir góðan und­ir­bún­ing frá Lindu Líf Boama en Elaina LaMacchia varði vel. Skömmu síðar slapp Murielle Tiern­an ein í gegn en hún átti slakt skot fram­hjá mark­inu. 

Vík­ing­ar voru aft­ur ná­lægt því að taka for­yst­una á 68. mín­útu. Gígja Val­gerður átti góða fyr­ir­gjöf beint á koll­inn á Bergþóru Sól Ásmunds­dótt­ur sem átti góðan skalla en LaMacchia varði vel.

Framarar fagna sigurmarkinu í kvöld.
Fram­ar­ar fagna sig­ur­mark­inu í kvöld. Ljós­mynd/​Krist­inn Steinn

Aðeins mín­útu síðar tók Fram for­yst­una eft­ir góða sókn. Alda átti góða stungu­send­ingu inn fyr­ir á Murielle Tiern­an sem skoraði af miklu ör­yggi fram­hjá Sig­ur­borgu Kötlu Svein­björns­dótt­ur. 

Vík­ing­ar sóttu af krafti loka­mín­út­urn­ar en náðu ekki að jafna. Lok­aniðurstaða 2:1-sig­ur Fram. 

Vík­ing­ur R. 1:2 Fram opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert