Gott gengi Vestra heldur áfram

Vestramenn halda góðu gengi sínu áfram.
Vestramenn halda góðu gengi sínu áfram. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Vestri er aft­ur kom­inn í topp­sæti Bestu deild­ar karla í knatt­spyrnu eft­ir sig­ur á Aft­ur­eld­ingu, 2:0, í fyrsta leik sjöttu um­ferðar á Ísaf­irði í dag. 

Vestri er á toppn­um með 13 stig en bú­inn að spila leik meira en Vík­ing­ur R. og Íslands­meist­ar­ar Breiðabliks sem geta jafnað Ísfirðinga að stig­um. Aft­ur­eld­ing er í sjötta sæti með sjö stig. 

Fyrri hálfleik­ur­inn var ekki mikið fyr­ir augað. Hins veg­ar komust heima­menn yfir á sjö­undu mín­útu þegar þeir fengu víti. Vestri fékk horn­spyrnu sem fór ekki yfir fyrsta mann. Bolt­inn barst út á Diego Montiel sem fór inn á völl­inn og sendi bolt­ann í gegn á Morten Ohlsen Han­sen. Axel hitti ekki bolt­ann og sparkaði Ol­sen niður og dóm­ar­inn gat ekki annað en dæmt víti. Montiel steig á punkt­inn og setti bolt­ann ör­ugg­lega fram hjá Jökli Andrés­syni, 1:0.

Fyrri hálfleik­ur­inn ein­kennd­ist af því að liðin skipt­ust á að halda í bolt­ann án þess að skapa sér mikið. Frá 20. mín­útu tók Aft­ur­eld­ing yfir og hélt bolt­an­um vel út á velli og náðu að þrýsta Vestra­mönn­um langt niður á völl­inn. Þeir náðu að skapa sér ein­hver hálf færi en náðu ekk­ert að ógna Vestra að neinu viti. Vítið var eina skotið í fyrri hálfleik sem fór á markið. Staðan 1:0 eft­ir fyrri hálfleik­inn.

Seinni hálfleik­ur­inn hélt áfram í sama takti og sá fyrri endaði. Aft­ur­eld­ing hélt vel í bolt­ann og var miklu betri út á vell­in­um, án þess að skapa sér al­menni­legt færi. Gegn gangi leiks­ins voru það Vestra­menn sem tvö­földuðu for­yst­una á 74 mín­útu. Heima­menn fengu horn­spyrnu og það myndaðist kl­afs eft­ir horn­spyrn­una og bolt­inn berst inn á Olh­sen sem var kom­inn einn á móti Jökli og rennd­ir hon­um til hliðar á Arn­ór Borg Guðjohnsen sem setti hann í autt markið, 2:0 fyr­ir Vestra og Arn­ór Borg með mark í sín­um fyrsta leik fyr­ir liðið. 

Eft­ir markið hélt leik­ur­inn áfram í sama takti, Aft­ur­eld­ing með bolt­ann og leik­ur­inn fjaraði út. Frá­bær sig­ur heima­manna sem koma sér í 13 stig og halda áfram að safna stig­um. Aft­ur­eld­ing spilaði ágæt­lega en var aldrei ná­lægt því að skora.

Vestri heim­sæk­ir Breiðablik í 16-liða úr­slit­um bik­ars­ins í miðri viku en Aft­ur­eld­ing heim­sæk­ir ÍA. Í næstu um­ferð Bestu deild­ar­inn­ar heim­sæk­ir Vestri Fram og Aft­ur­eld­ing fær KR í heim­sókn. 

Vestri 2:0 Aft­ur­eld­ing opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert