Taphrina Stjörnunnar á enda

Emil Atlason kom Stjörnunni yfir.
Emil Atlason kom Stjörnunni yfir. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Stjarn­an hafði bet­ur gegn Fram, 2:0, í sjöttu um­ferð Bestu deild­ar karla í knatt­spyrnu á heima­velli Stjörn­unn­ar í Garðabæ í kvöld.

Stjarn­an fór upp í sjötta sæti en fyr­ir leik­inn í dag var liðið í ní­unda sæti og hafði tapað þrem­ur leikj­um í röð. Fram fór niður í ní­unda sæti.

Fyrri hálfleik­ur var kafla­skipt­ur og bæði lið fengu fín færi. Bene­dikt V. Warén komst í frá­bært færi þegar stund­ar­fjórðung­ur var liðinn af leikn­um. Hann kom inn frá vinstri og fór í skot sem var á leiðinni inn en Þorri Stefán Þor­björns­son komst fyr­ir það.   

Vuk Osk­ar Dimitrij­evic átti skot eft­ir 20 mín­út­ur sem Árni Snær Ólafs­son varði vel frá hon­um af stuttu færi. Stuttu seinna fékk Simon flott færi en hann fór í skot hægra meg­in í teign­um en það fór rétt yfir.

Fyrra mark Stjörn­unn­ar kom á 42. mín­útu en það skoraði Emil Atla­son. Bene­dikt Warén kom með frá­bæra fyr­ir­gjöf á fjær, Emil var með páss og setti hann í fyrstu snert­ingu í markið og staðan var 1:0 í hálfleik.

Seinni hálfleik­ur var mjög ró­leg­ur en hættu­leg­asta færi Fram kom á 55. aín­útu þegar Már Ægis­son komst einn í gegn og skaut í stöng­ina.

Varamaður­inn Örvar Eggerts­son skoraði svo seinna mark Stjörn­unn­ar á 87. mín­útu og aft­ur var Bene­dikt með stoðsend­ing­una.

Hann kom inn á völl­inn og sendi bolt­ann út í teig­inn á Örvar sem setti hann í fyrstu snert­ingu með vinstri í vinstri vink­il­inn.




Stjarn­an 2:0 Fram opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert