ÍBV er komið í átta liða úrslitin í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir sigur á Völsungi frá Húsavík, 1:0, á Þórsvellinum í Vestmannaeyjum síðdegis í dag.
Allison Lowrey skoraði sigurmarkið á 35. mínútu og þar með liggur fyrir að tvö lið úr 1. deild, hið minnsta, komast í átta liða úrslit.
Auk ÍBV komust Þór/KA og Breiðablik áfram í dag og hinir fimm leikirnir fara fram á morgun. Þeir eru:
17.00 Stjarnan - Tindastóll
18.00 Fram - Valur
18.00 HK - Grindavík/Njarðvík
18.00 Fylkir - FH
19.30 Þróttur R. - Víkingur R.