Hann þarf að leggja sig meira fram

Ásgeir Sigurgeirsson og Arnór Gauti Jónsson í baráttunni á KA-vellinum …
Ásgeir Sigurgeirsson og Arnór Gauti Jónsson í baráttunni á KA-vellinum í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Hall­grím­ur Jónas­son þjálf­ari KA kvaðst vera sátt­ur við góða frammistöðu sinna manna þrátt fyr­ir tapið gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fót­bolta á KA-vell­in­um á Ak­ur­eyri í dag.

„Þeir koma hingað sem Íslands­meist­ar­ar og á toppi deild­ar­inn­ar og eru ljón­heppn­ir að fara heim með þrjú stig. Þannig að ég er ótrú­lega ánægður með strák­ana í dag og það er svona frammistaða sem við þurf­um í hverri viku, þá fáum við fullt af stig­um," sagði Hall­grím­ur við mbl.is.

Hall­grím­ur Mar Stein­gríms­son var ekki í byrj­un­arliðinu hjá KA í dag og spurður um ástæðu þess svaraði þjálf­ar­inn:

„Hann þarf að leggja sig meira fram og frammistaða hans gegn ÍA var bara ekki nógu góð. Til þess að fá að spila þurfa menn að leggja sig fram, en það var ekki bara hann held­ur setti ég þrjá menn á bekk­inn eft­ir þann leik.

Ég var hins veg­ar ánægður með hans frammistöðu þegar hann kom inn á í dag auk þess sem varn­ar­leik­ur okk­ar var frá­bær," sagði Hall­grím­ur Jónas­son.

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert