Mark Arons nóg á Akureyri

Aron Bjarnason skýtur að marki KA en hann skoraði sigurmark …
Aron Bjarnason skýtur að marki KA en hann skoraði sigurmark Breiðabliks í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Breiðablik vann KA 1:0 á KA-vell­in­um á Ak­ur­eyri í nokkuð dauf­um leik í dag. Leik­ur­inn var í 6. um­ferð Bestu deild­ar karla í knatt­spyrnu.

Breiðablik er nú með 13 stig og eru í öðru sæti, en KA sit­ur á botn­in­um með fjög­ur stig.

Leik­ur­inn fór ró­lega af stað þar sem heima­menn reyndu að verj­ast neðarlega með fimm manna varnalínu. Blikar voru hins veg­ar ekk­ert að drífa sig að neinu og voru frek­ar ró­leg­ir á bolt­an­um sér­stak­lega eft­ir að Aron Bjarna­son skoraði á 13. mín­útu þegar hann renndi bolt­an­um í netið vinstra meg­in úr víta­teign­um eft­ir send­ingu frá Hösk­uldi Gunn­laugs­syni, 1:0 fyr­ir Breiðablik.

Fyrri hálfleik­ur­inn í heild sinni var rosa­lega ró­leg­ur og eng­in raun­veru­leg færi fyr­ir bæði liðinn. Seinni hálfleik­ur­inn var aðeins líf­legri með nokk­ur færi en hann var samt svo­lítið dauf­ur.

Viðar Örn Kjart­ans­son var næst­ur því að jafna en Ant­on Ari Bjarna­son í marki Breiðabliks varði glæsi­lega frá hon­um.

KA menn reyndu eins og þeir gátu und­ir lok­in að jafna en eitt skot þeirra var varið á lín­unni.

KA 0:1 Breiðablik opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert