„Það eru engin mörk gefins í fótbolta, þú þarft alltaf að vinna þér inn fyrir þeim sama hvernig það er,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings eftir 3:1-sigur liðsins gegn FH í Bestu deild karla í kvöld.
„Mér fannst þetta spilast nokkurn veginn eins og ég hélt, það var mikil harka í leiknum, eins og alltaf þegar við mætum FH þá er mikil harka og mér finnst það skemmtilegt.
Við vorum orkumiklir og öflugir í návígum þannig ég er sáttur með þennan sigur þó að það sé margt sem við hefðum getað gert betur í leiknum. Eins og að nýta stöðurnar okkar á lokaþriðjungnum aðeins betur, vera aðeins meira klínískir og koma okkur í fleiri færi,“ sagði Sölvi í viðtali við mbl.is eftir leikinn.
Mörkin sem Víkingsmenn skoruðu í kvöld voru áhugaverð. Fyrsta var eftir hornspyrnu sem kom eftir að leikmaður FH sendi boltann beint út af undir lítilli pressu. Næsta mark kom eftir sendingu á miðjuna, Víkingar settu pressu og boltinn lak í markið. Þriðja kom eftir sendingu frá markmanni FH beint á Daníel Hafsteinsson.
„Við skorum úr flottri hornspyrnu, við erum góðir í hornspyrnum en FH-ingar eru góðir í að verjast þeim svo það er stórt kredit á okkur að ná að skora úr hornspyrnu gegn þeim.Svo er flott pressumóment þar sem við setjum mikla pressu á markmanninn og vinnum boltann en vissulega er kannski heppnisstimpill yfir þessu, sérstaklega marki númer tvö, en þetta er góð pressa.
Þeir vilja spila þetta uppspil gegn okkur og við vorum bara mættir með miðjumennina. Daníel Hafsteinsson gerir vel og er mættur þarna til að vinna hann, auðvitað kemur það fyrir að það er léleg sending og þá erum við tilbúnir að þefa þær uppi.“
Pálmi Rafn Arinbjörnsson var í marki Víkings í kvöld en Ingvar Jónsson meiddist í síðasta leik.
„Ég býst ekki við því að það sé langt. Þetta var smá stífleiki framan á og við þurfum bara að meta það. Ég í raun get ekki sagt það, ég þarf að spyrja sjúkraþjálfarann betur að því.”
Víkingur er núna á toppi deildarinnar með 13 stig.
„Það er frábært. Þetta var fyrir Víkingsmömmurnar á mæðradeginum.
Það er frábært að vera á toppnum en það er mikið eftir og við þurfum að halda áfram að þróa okkar leik og bæta hann. Mér finnst við eiga allavega tvo gíra inni.”