„Sjálfum okkur verstir“

Heimir á hliðarlínunni í kvöld.
Heimir á hliðarlínunni í kvöld. Ljósmynd/Kristinn Steinn

„Við vor­um sjálf­um okk­ur verst­ir í þess­um leik,“ sagði Heim­ir Guðjóns­son þjálf­ari FH eft­ir 3:1-tap liðsins gegn Vík­ing­um í Bestu deild karla í knatt­spyrnu í kvöld.

„Ef það var ein­hvern tím­ann lag að vinna Vík­ing þá var það í kvöld en við gerðum bara of mikið af mis­tök­um í upp­spil­inu okk­ar og vor­um að tapa bolt­an­um á slæm­um stöðum og fá á okk­ur auðveld mörk,” sagði Heim­ir í viðtali við mbl.is eft­ir leik­inn.

„Það vantaði betri hreyf­ingu án bolta í fyrri hálfleik og að menn hefðu hug­rekki í að fá bolt­ann, því þegar all­ir vildu fá bolt­ann og menn voru til­bún­ir að spila þá gekk okk­ur vel.“

Bara fjög­ur stig eft­ir sex leiki, hvað er það helsta sem þið þurfið að bæta?

„Við sáum það á móti Val að þegar við fáum ekki á okk­ur mörk þá eig­um við mögu­leika á að vinna leiki. Við feng­um á okk­ur þrjú mörk í dag, tvö þar sem við töp­um bolt­an­um á slæm­um stöðum og eitt úr föstu leik­atriði og við þurf­um bara að laga það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert