Real Sociedad fylgdist með methafanum í Laugardal

Alexander Rafn Pálmason fagnar markinu gegn ÍBV á laugardaginn.
Alexander Rafn Pálmason fagnar markinu gegn ÍBV á laugardaginn. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Full­trú­ar frá spænska knatt­spyrnu­fé­lag­inu Real Sociedad voru á meðal áhorf­enda á viður­eign KR og ÍBV í Bestu deild karla sem fram fór á Þrótt­ar­velli í Laug­ar­dal á laug­ar­dag­inn.

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is komu þeir meðal ann­ars til lands­ins til að fylgj­ast með Al­ex­and­er Rafni Pálma­syni, hinum 15 ára gamla leik­manni KR, sem var ekki lengi að láta til sín taka og skoraði fyrsta mark KR í 4:1 sigri, eins og ít­ar­lega hef­ur verið fjallað um.

Hann heim­sótti spænska fé­lagið í haust ásamt föður sín­um, Pálma Rafni Pálma­syni, fram­kvæmda­stjóra KR, en góð tengsl hafa tek­ist á milli KR og Real Sociedad.

Landsliðsfyr­irliðinn Orri Steinn Óskars­son leik­ur sem kunn­ugt er með Real Sociedad en fé­lagið keypti hann af FC Kö­ben­havn síðasta haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert