Þróttur vann níu marka leik

Þróttarkonur fagna einu af þremur mörkum Þórdísar Elvu Ágústsdóttur.
Þróttarkonur fagna einu af þremur mörkum Þórdísar Elvu Ágústsdóttur. mbl.is/Karítas

Þrótt­ur úr Reykja­vík vann sann­fær­andi sig­ur á Vík­ingi úr Reykja­vík í níu marka leik, 6:3, í 16-liða úr­slit­um bik­ar­keppni kvenna í knatt­spyrnu á Þrótt­ar­velli í Laug­ar­daln­um í kvöld. 

Þrótt­ur er átt­unda liðið til að kom­ast í átta liða úr­slit­in en hin eru Breiðablik, Þór/​KA, Tinda­stóll, Val­ur og FH úr Bestu deild­inni og ÍBV og HK úr 1. deild­inni. 

Þór­dís Elva Ágústs­dótt­ir átti stór­leik en hún skoraði fyrstu þrjú mörk Þrótt­ar í fyrri hálfleik en staðan var ein­mitt 3:0 eft­ir hann. 

Í seinni hálfleik voru hins veg­ar skoruð sex mörk en Brynja Rán Knudsen kom Þrótti í 4:0 á 46. mín­útu og Unn­ur Dóra Bergs­dótt­ir kom liðinu í 5:0 á 57. mín­útu. 

Dagný Rún Pét­urs­dótt­ir og Berg­dís Sveins­dótt­ir skoruðu hins veg­ar tvö mörk á tveim­ur mín­út­um og minnkuðu mun­inn fyr­ir Vík­ing, 5:2, á 60. og 62. mín­útu. 

Sig­ríður Theód. Guðmunds­dótt­ir kom Þrótti í 6:2 þrem­ur mín­út­um síðar en fjór­um mín­út­um eft­ir það minnkaði Ísfold Marý Sig­tryggs­dótt­ir mun­inn í þrjú mörk á nýj­an leik, 6:3. 

Eft­ir það var þó ekki meira skorað. 

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert