Best í fimmtu umferðinni

Þórdís Elva Ágústsdóttir með boltann í leiknum gegn Val.
Þórdís Elva Ágústsdóttir með boltann í leiknum gegn Val. mbl.is/Eyþór

Þór­dís Elva Ágústs­dótt­ir miðjumaður Þrótt­ar var besti leikmaður­inn í fimmtu um­ferð Bestu deild­ar kvenna í fót­bolta að mati Morg­un­blaðsins.

Þór­dís lék mjög vel þegar Þrótt­ur lagði Val að velli á Hlíðar­enda í síðustu viku, 3:1, en þar skoraði hún eitt mark og lagði annað upp gegn sín­um fyrr­ver­andi sam­herj­um. Hún fékk tvö M í ein­kunn hjá Morg­un­blaðinu fyr­ir frammistöðu sína.

Þór­dís er 24 ára göm­ul og gekk til liðs við Þrótt fyr­ir þetta tíma­bil en hún lék á síðasta ári með Växjö í sænsku úr­vals­deild­inni þar sem hún spilaði 24 af 26 leikj­um liðsins og skoraði tvö mörk.

Hún er upp­al­in hjá Hauk­um og lék þar fyrstu fjög­ur árin í meist­ara­flokki, þar af eitt tíma­bil í efstu deild.

Lið fimmtu um­ferðar má sjá í heild sinni á íþrótt­asíðum Morg­un­blaðsins í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert