Ein úr Bestu deildinni í bann

Fanndís Friðriksdóttir og Bríet Jóhannsdóttir í leik Vals og Þórs/KA …
Fanndís Friðriksdóttir og Bríet Jóhannsdóttir í leik Vals og Þórs/KA í síðasta mánuði. mbl.is/Ólafur Árdal

Aðeins einn leikmaður úr Bestu deild kvenna í knatt­spyrnu var á fundi aga- og úr­sk­urðar­nefnd­ar KSÍ í dag úr­sk­urðaður í leik­bann.

Þar er um að ræða Bríeti Jó­hanns­dótt­ur, leik­mann Þórs/​KA, sem var úr­sk­urðuð í eins leiks bann eft­ir að hún hlaut brott­vís­un í 5:2-sigri á FHL á Reyðarf­irði síðastliðið fimmtu­dags­kvöld.

Bríet tek­ur út leik­bannið í næstu um­ferð Bestu deild­ar­inn­ar, þeirri sjöttu, þegar Þór/​KA heim­sæk­ir nýliða Fram í Úlfarsár­dal­inn á laug­ar­dag­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert