Víðir og Reynir sameinast ekki

Leikmenn Víðis fagna sigri í neðrideildabikar karla í knattspyrnu eftir …
Leikmenn Víðis fagna sigri í neðrideildabikar karla í knattspyrnu eftir sigur á KFG í úrslitaleik haustið 2023. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekk­ert verður af fyr­ir­hugaðri sam­ein­ingu Víðis úr Garði og Reyn­is úr Sand­gerði í knatt­spyrnu karla. Bæði fé­lög felldu til­lögu um sam­ein­ingu á aðal­fund­um sín­um.

RÚV greindi frá því í gær að stjórn Reyn­is hafi fellt til­lög­una með mikl­um meiri­hluta en að stjórn Víðis hafi samþykkt til­lög­una með naum­um meiri­hluta. Hins veg­ar hefðu 2/​3 þurft að samþykkja hana til að hún tæki gildi.

Garður og Sand­gerði mynda sam­an Suður­nesja­bæ og stóð til að sam­einað lið Víðis og Reyn­is myndi spila leiki sína í Sand­gerði og æfa í Garðinum á næsta tíma­bili.

Víðir er í 2. deild og Reyn­ir leik­ur í 3. deild en fé­lög­in víxluðu deild­um síðasta haust þegar Reyn­ir féll í 3. deild­ina en Víðis­menn fóru upp í 2. deild. Til stóð að nýja fé­lagið tæki sæti þess liðs sem stæði ofar í deilda­keppn­inni að þessu keppn­is­tíma­bili loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert