Markahrókur og Íslandsmeistari í fimleikum í neðstu deild

Hrvoje Tokic og Martin Bjarni Guðmundsson ásamt þjálfurunum Kristjáni Frey …
Hrvoje Tokic og Martin Bjarni Guðmundsson ásamt þjálfurunum Kristjáni Frey og Sveini Fannari. Ljósmynd/Stokkseyri

Knatt­spyrnuliði Stokks­eyr­ar hef­ur borist mik­ill liðstyrk­ur fyr­ir kom­andi átök í 5. deild karla í sum­ar þar sem króa­tíski fram­herj­inn Hrvoje Tokic er geng­inn til liðs við fé­lagið.

Tokic kem­ur frá Árborg en hann hef­ur einnig leikið með Sel­fossi, Ægi, Vík­ingi frá Ólafs­vík og Breiðabliki í efstu þrem­ur og fimmtu efstu deild hér á landi.

Alls eru mörk­in orðin 96 í 135 deild­ar­leikj­um hjá Tokic á Íslandi og sex í tíu bikarleikj­um.

Auk þess sem Tokic samdi er Mart­in Bjarni Guðmunds­son, marg­fald­ur Íslands­meist­ari í fim­leik­um, geng­inn til liðs við Stokks­eyri, sem leik­ur sem áður seg­ir í sjöttu efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert