Hrósaði Gylfa en valdi hann ekki

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í hópnum.
Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í hópnum. mbl.is/Eyþór Árnason

Gylfi Þór Sig­urðsson er ekki í landsliðshópi Íslands fyr­ir úti­leik­ina gegn Skotlandi og Norður-Írlandi í næsta mánuði en um vináttu­leiki er að ræða.

„Ég hef ekk­ert rætt við Gylfa,“ sagði Arn­ar Gunn­laugs­son landsliðsþjálf­ari á blaðamanna­fundi í dag.

„Hann er byrjaður að sýna sitt rétta and­lit í síðustu leikj­um sem er mjög gott. Það eru erfiðir leik­ir fram und­an og Evr­ópu­leik­ir gegn sterk­um liðum. Hann er klár­lega inni í mynd­inni í haust,“ bætti Arn­ar við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert