Hákon Rafn Valdimarsson varði mark íslenska landsliðsins gegn Kósovó í mars, í fyrstu leikjum Arnars Gunnlaugssonar sem landsliðsþjálfari.
Hákon er varamarkvörður Brentford á Englandi og Elías Rafn Ólafsson er nú varamarkvörður Midtjylland í Danmörku. Anton Ari Einarsson aðalmarkvörður Breiðabliks verður svo líka í hópnum gegn Norður-Írlandi og Skotlandi í vináttuleikjum í næsta mánuði.
„Þetta er mjög snúin staða. Hákon og Elías eru varamarkverðir, sem og nokkrir aðrir leikmenn. Mögulega eru það örlög fyrir svona litla þjóð, að vera með landsliðsmenn sem eru ekki fastamenn í sínum liðum.
Það er svekkjandi að markverðirnir séu ekki að spila meira en ég hef fulla trú á að báðir leikmenn geti leyst þetta verkefni,“ sagði Arnar við mbl.is.