„Ég myndi segja að þetta hafi spilast eins og við ætluðum okkur – leyfa Víkingum hafa boltann, vinna hann svo á ákveðnum svæðum og komast aftur fyrir vörnina,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastólskvenna eftir sannfærandi 4:1 sigur á Víkingum þegar liðin mættust í 6. umferð efstu deildar kvenna í fótbolta í Víkinni í dag.
„Við ætluðum líka að reyna vinna boltann með hápressu þegar markmaður þeirra var með boltann. Svo að heilt yfir gekk leikplanið því upp og við náðum líka loksins að nýta færin vel svo ég er bara mjög glaður,“ sagði þjálfarinn og segir síðustu leiki hafa góð áhrif á sjálfstraustið.
„Við tökum þennan sigur með okkur í næsta leik. Unnum Stjörnuna í bikarnum í síðasta leik svo við komum með gott sjálfstraust í þennan leik og vonumst við að koma með enn meira sjálfstraust í næsta leik og verkefni.“