Þór/KA gerði góða ferð til Reykjavíkur er liðið lagði Fram, 3:1, í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í dag.
Úrslitin þýða að Þór/KA er með 12 stig í fjórða sæti en Fram er með sex stig í áttunda sæti.
Þór/KA komst yfir á 20. mínútu eftir mark frá Amalíu Árnadóttur. Sandra María Jessen þræddi Amilíu í gegn sem var eina á móti markmanni en skot hennar endaði í stönginni. Amalía var hins vegar fyrst á frákastið og fylgdi eftir og skoraði í autt markið.
Eftir hálftíma leik fékk Dominiqe Bond-Flasza dauðafæri til að jafna metin en skot hennar úr markteig endaði yfir markinu.
Skömmu síðar tvöfaldaði Sandra María forystu Þórs/KA. Henríetta Ágústsdóttir átti góða stungusendingu inn fyrir á Söndru sem skoraði af miklu öryggi.
Fram náði að minnka muninn í blálokin í fyrri hálfleik. Sara Svanhildur sendi boltann fyrir markið á Murielle Tiernan sem stýrði honum í netið. num endaði yfir markinu.
Staðan var 2:1 fyrir Þór/KA í hálfleik.
Sandra María bætti við sínu öðru marki á 60. mínútu. Það kom eftir stórkostlega fyrirgjöf frá Angelu Mary Helgadóttur af hægri kantinum, beint á kollinn á Söndru sem stangaði boltann í netið.
Mörkin urðu ekki fleiri í leiknum og Þór/KA vann öruggan 3:1-sigur.