„Sigurinn er alltaf í fyrsta sæti en það er gaman að skora,“ sagði Elísa Bríet Björnsdóttir, sem skoraði tvö mörk fyrir Tindastól í sannfærandi 4:1 sigri á Víkingskonum þegar liðin mættust í 6. umferð efstu deildar kvenna á Víkingsvelli í dag.
Gestirnir frá Sauðárkróki voru með tök á leiknum þó þeir væru ekki alltaf með boltann en spiluðu af yfirvegun, sem skilaði þessu örugga sigri. „Við spiluðum eins og við ætluðum okkur, héldum ró okkar og vorum ekkert að fara á taugum eða neitt, bara spiluðum boltanum og mér fannst hálfleikurinn mjög góður. Markmiðið fyrir þetta leik var að spila eins og við vildum, hugsa bara um okkur, standa vörnina og skila góðum sóknarleik,“ bætti fyrirliðinn við og telur þessi úrslit muni hafa áhrif á leik liðsins.
„Við ætlum að reyna komast aðeins hærra, hér var alltaf ætlunin að taka þrjú stig. Þetta ætti að efla okkur en við tökum bara hvernig leik og ætlum auðvitað að vinna þá alla.“