Grindavík gerði einstaklega góða ferð í Laugardalinn og lagði þar Þrótt úr Reykjavík örugglega að velli, 4:2, í þriðju umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld.
Með sigrinum fór Grindavík upp í sjötta sæti þar sem liðið er nú með fjögur stig. Þróttur er í áttunda sæti, einnig með fjögur stig.
Ármann Ingi Finnbogason kom Grindvíkingum yfir eftir tólf mínútna leik og Breki Þór Hermannsson tvöfaldaði svo forystuna skömmu fyrir leikhlé með marki úr vítaspyrnu.
Áður en fyrri hálfleikur var úti minnkaði Eiríkur Þorsteinsson Blöndal muninn fyrir Þrótt og staðan því 2:1 í hálfleik.
Adam Árni Róbertsson bætti við þriðja marki gestanna úr Grindavík 69. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Breki Þór annað mark sitt og fjórða mark liðsins.
Adam Árni fékk svo sitt annað gula spjald og þar með rautt 13 mínútum fyrir leikslok.
Jakob Gunnar Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Þrótt á 90. mínútu en var það um seinan fyrir heimamenn og fyrsti sigur Grindavíkur í sumar staðreynd.
Í blálokin fékk varamaðurinn Sölvi Snær Ásgeirsson, leikmaður Grindavíkur, beint rautt spjald fyrir ljóta tæklingu.