Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar, var að vonum kátur er hann mætti í viðtal til mbl.is eftir 4:3-sigur liðsins gegn KR í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld.
„Mér líður rosalega vel. Þetta var það skrítinn leikur að maður er ennþá að melta þetta,“ sagði Aron Elí í samtali við mbl.is eftir leik.
Afturelding lenti tvisvar undir í leiknum en sýndi mikinn karakter og vann að lokum sterkan 4:3-sigur.
„Við vissum að þeir eru með fullt sjálfstraust og spila mjög skemmtilegan fótbolta, með góða leikmenn. Þegar við lendum undir lítur þetta ekki vel út fyrir okkur en við erum með þannig lið, við erum í góðu standi og við getum líka spilað svona bolta og mikinn sóknarleik. Þannig við ákváðum að gefa allt í þetta og þetta datt okkar megin í dag.“
Hvað var það sem lagði grunninn að þessum sigri í dag?
„Þolinmæði og þéttleiki í varnarleiknum. Við vorum mjög góðir í föstum leikatriðum eins og sást. Þeir eru með mikið svæði, vilja sækja á mörgum og skilja mikið svæði og við náðum að nýta það þegar við unnum boltann.
Ég held að það og baráttuandinn og hvernig vígi þetta er hjá okkur. Margir stuðningsmenn, nýtt lag og öll stemningin, ég held að það skilaði þessu.“
Hvernig var tilfinningin að skora þitt fyrsta mark í efstu deild fyrir Aftureldingu?
„Ég var búinn að bíða eftir þessu í nokkra leiki og gaman að geta skorað fyrsta markið og klárað það. Mér fannst reyndar stoðsendingin í fyrsta markinu betri en markið en það skiptir engu máli því ljót mörk gilda jafn mikið.“
Næsti leikur er gegn KA, hvernig undirbúiði ykkur fyrir þann leik?
„Við jöfnum okkur aðeins á þessum þremur leikjum. Við ferðuðumst vestur og spiluðum upp á skaga í miðri viku. Mjög erfiðir leikir og þessi leikur mjög erfiður, mikið hlaup. Við þurfum góða endurheimt og að skoða KA-mennina,“ sagði Aron Elí að lokum.